top of page

Sveitasetrið býður upp á 30 notaleg 26 fm - 30 fm herbergi, öll með baði og verönd. Einnig eru í boði 3 herbergi með baði í bændagistingu á Hofsstöðum.
 
Á Sveitasetrinu er veitingastaður þar sem eigin framleiðsla og hráefni úr heimabyggð er í fyrirrúmi.
Hér er hægt að dvelja og njóta kyrrðarinnar sem sveitin hefur uppá að bjóða með alla þjónustu og afþreyingu í Skagafirði innan seilingar.
Sveitasetrið er við veg nr. 76 aðeins 18 km frá þjóðvegi 1.
Afþreying í Skagafirði er fjölbreytt og áhugaverð, svo sem söfn, sýningar, sundlaugar, hestasýningar, bátasiglingar, golf, skíðasvæði, gönguleiðir o.fl. (www.visitskagafjordur.is)
Hlökkum til að taka á móti ykkur.
bottom of page



